föstudagur, september 03, 2010

að blogga

Jæja, þá er ég að gæla við að byrja að blogga aftur, veit samt eki hvort mér takist að láta verða af því...........

|

sunnudagur, apríl 18, 2010

Pabbi

já pabbi kallinn var í fréttum á CNN í nótt!

Getið séð videoið hérna.

|

miðvikudagur, mars 24, 2010

Erum enn á lífi!

Já við erum hérna ennþá :)
Datt í hug að henda inn eins og einu bloggi og í leiðinni sjá hvort það séu enn einhverjir sem kíkja hingað inn :)

Síðan seinast er mikið búið að gerast, við skruppum heim um jólin og
stoppuðum auðvitað í Lundi á leiðinni heim og héldum lítil jól saman með þeim þar sem við elduðum íslenskt lambalæri með sykurbrúnuðum kartöflum og allt sem tilheyrir :)

Nutum svo jólanna með fjölskyldunni og stússuðumst í því sem við þurfutm að klára heima á Íslandi fyrir brúðkaupið í sumar því við komum bara heim rétt fyrir brúðkaupið og það var gott að geta klárað allt sem hægt var um jólin :)
Svo komum við heim og ég kláraði starfsnámið mitt á ökla/fót skurðdeildinni hérna í Árósum , en það gekk alveg rosalega vel og ég lærði ekkert smá mikið og fékk bara enn og aftur staðfestingu á því að ég er í rétta náminu :)
Við fengum svo frekar skyndilega nýja íbúð á besta stað í bænum, þannig að á mjög stuttum tíma pökkuðum við niður öllu dótinu okkar og fluttum í 3 herbergja, 90 m2 íbúð á jarðhæð í hverfinu sem okkur langaði mest til að flytja í :) þannig við getum ekki verið annað en sátt við að hafa fengið þessa íbúð :) og núna eftir að hafa búið hérna í 2 mánuði þá erum við loksins búin að koma okkur fyrir og gætum ekki verið ánægðari með þetta allt saman :)

Svo þegar við vorum nýflutt inn, bara strax daginn eftir þá komum mamma, pabbi, Gummi og Gréta í hei msókn til okkar og við nutum þess að vera öll saman heila helgi, það er ekki svo oft sem við erum öll saman :)
Mamma og pabbi voru svo samanlagt í heila 10 daga hjá okkur og það var frábært að hafa þau. Þau hjálpuðu okkur ða koma okkur fyrir og ganga frá gömlu íbúðinni, þannig þetta var alveg frábær tímasetning að fá þau í heimsókn.
En við lofuðum jafnframt að næst þegar þau koma í heimsókn verður meiri hygge og minni vinna ;)
Atli var svo í praktík í fyrirtæki sem heitir Johnsons control og í framhaldi af því fékk hann vinnu :) þannig að hann er alveg alsæll með að vera komin í vinnu :) Hann er á fullu að vinna yfirvinnu þessa dagana til að safna sér inn tímum til að við getum skroppið til Osló í maí að heimsækja vini okkar.

Annars er bara planið að slaka á í páskafríinu, en við ætlum að fara á miðvikudaginn til Gumma og Grétu og verðum þar fram á annan í páskum :) Gaman að geta haldið páskana saman með fjölskyldumeðlimum :)

jæja þetta ætti að vera nóg update :) en ætla svo að reyna að vera dugleg að blogga :)

|

sunnudagur, nóvember 01, 2009

4 ár :)

Já í dag eigum við Atli 4 ára afmæli :) við erum búin að gera mikið og upplifa mikið saman á þessum 4 árum :) við er búin að trúlofa okkur og erum að fara að gifta okkur næsta sumar :)

Við erum búin að ferðast heilmikið saman, allt frá því að fara saman á Hróaskeldu til að fara saman til Tælands og Ástralíu :)
Svo byrjuðum við að búa saman og fluttum til Danmerkur þar sem það er búið að fara vel um okkur í rúm 2 ár :)

Saman erum við búin að ferðast um Danmörku að skoða umhverfið í kringum okkur, við höfum þó sérstakt dálæti á Himmelbjerget :)

Við erum búin að fagna saman áföngum eins og B.A. prófinu og Masternum hans Atla :)

Og fyrst og fremst erum við bestu vinir sem að geta hlegið alveg endalaust mikið af vitleysunni í hvor öðru :)
Hvernig getur maður annað en hlakkað til framtíðarinnar með besta vini sínum?

|

mánudagur, október 05, 2009

Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn okkar


Já það hefur orðið aukning á heimilinu okkar.....við keyptum okkur nefnilega hamstur, eða réttara sagt síberískan dverghamstur. Við erum að verða búin að eiga hana Rassmínu Svövu í að verða mánuð, og hún dafnar bara vel hjá okkur og er yfirmáta ofvirk og átvagl. En við skemmtum okkur konunglega yfir litla skottinu :)

|

miðvikudagur, september 30, 2009

Loksins lífsmark!

Já það er nú bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér síðan að skólinn byrjaði að ég er varla búin að hafa tíma til að koma upp og anda! Og það er ekkert að fara að róast....en einhver vitur sagði nú að það er betra að hafa of mikið að gera en of lítið. En ég er sem sagt núna að klára bóklega hlutann fyrir fyrsta starfsnámið inni á spítala...og það er mikið sem að við þurfum að komast yfir áður en að við förum út að "vinna". En þar sem að við erum að læra erfðafræði núna, og það er verið að útskýra meiósu fyrir stelpunum þá ákvað ég að taka pínu pásu og blogga aðeins.

Atli er á fullu að sækja um vinnur þessa dagana, og verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því sem hann nú þegar er búinn að sækja um. Við leyfum ykkur auðvitað að fylgjast með því ef að eitthvað gott kemur út úr því, annars heldur hann bara áfram að sækja um eins og hann eigi lífið að leysa :)
Og ég læri og læri núna fram að 9. okt, en þá fæ ég viku í frí frá skólanum og ætlum við Atli þá að hygga okkur eitthvað saman :) en þetta verður nú samt ekki alveg frí, þar sem ég þarf að byrja að lesa fyrir próf sem að ég fer í, í byrjun nóvember. En ég ætla nú samt að taka nokkra daga í frí frá lestri þegar Ásta mamma hans Atla og Guðfinna amma hans Atla, koma til okkar í nokkra daga til að vera við útskriftina hans Atla sem er 23. október :)

Svo í byrjun nóvember fer ég inn á bæklunarskurðdeild að læra að vera hjúkrunarfærðingur :) Vonandi verður maður ágætlega undir það búinn, eða allavegana það sem við eigum að leggja áherslu á í þessu starfsnámi. En ég verð inni þeirri deild þangað til í lok jan, og er staðsetning deildarinnar alveg frábær þar sem hún er bara hinu megin við götuna okkar :) þannig að þó að ég þurfi að mæta klukkan 7, eða réttara sagt að vera klædd í gallann og uppi á deild kl. 7, að þá þarf ég ekki að vakna fyrir allar aldir :)

En það besta sem að er búið að gerast síðust daga er það að við erum búin að panta flug heim um jólin :) en við komum heim 18.des og förum heim 5.jan. Þannig að við náum góðu stoppi heima :) er ekkert smá kát með það, en það verður þá 3. ferð okkar heim í ár....held þær verði aðeins færri á næsta ári í staðinn ;)

En jæja ég læt þetta nægja í bili....

|

miðvikudagur, ágúst 26, 2009

Cand. Mag.

Já frá og með deginum í dag má Atli titla sig sem Cand. Mag. í evrópufræðum! Til hamingju Atli!

|

föstudagur, júlí 24, 2009

Sumarfríið

Það er nú búið að vera ljúft hjá mér síðan að ég kláraði prófin. Ég er bara búin að vera að stjana við hann Atla á meðna hann húkir inni í herbergi að skrifa og skrifa, hann er búinn að vera alveg rosalega duglegur að skrifa og núna er bara vika í skil. Atli og pabbi nota tæknina og fara í gegnum ritgerðina saman og erum við dauðfegin að við höfum pabba að til að lesa í gegnum ritgerðina þar sem að hann gerir það 1000 sinnum betur en ég :)

Ég skrapp svo til hennar Önju okkar og hún og Daniel tóku vel á móti mér og áttum við góða 5 daga saman, þar sem að Anja sýndi mér Koblenz og svæðið þar í kring. Afar fallegt svæði og mæli með að þeir sem að geta fari og heimsækji Koblenz, það skemmir svo ekki fyrir að hún Anja skulu vera þar líka :)

Annars er það bara búið að vera rólegheitin hjá okkur, erum búin að kíkja í bíó á nýju Harry Potter myndina "Harry Potter and the halv blood prince", fórum svo líka í dýragarð sem að er ekki langt frá Árósum og heitir Reepark og er rétt hjá Ebeltoft. Mælum með dýragarðinum, vorum alveg heilluð af honum og skemmtum okkur mjög vel með vinum okkar Tine og Rasmus. Kíktum líka inn í Ebeltoft og það er mjög sætur bær og er fullur af lífi svona yfir hásumarið. Erum svo búin að vera að borða með vinum okkar og njóta þess að fólk hafi tíma til að hittast, og við höfum haft tíma til þess þar sem Atli er svo duglegur að skrifa á daginn að hann getur tekið frí á kvöldin og átt hygge kvöld með mér :) og jafnvel inn á milli hefur hann geta farið með mér á ströndina :)

Svo er það bara vika í að við komum heim til Íslands! En við komum heim á laugardaginn um næstu helgi, lendum bara klukkan 9 um morgunin þannig að það er heldur betur farið að styttast í þetta :) við hlökkum mjög mikið til að koma heim og æltum að njóta þess að vera í sumarfríi saman. En við höfum ekki átt sumarfrí saman á Íslandi síðan að við byrjðum saman, þannig að þess verður svo sannarlega notið....en það mikilvægasta við að koma heim er náttúrulega að mæta í brúðkaup í fjölskyldunni :)

Hlökkum til að sjá ykkur öll þegar við komum heim í næstu viku og ef að ég blogga ekkert áður enað við komum heim þá verðum við með gömlu íslensku númerin okkar, þannig að það verður auðvelt að ná í okkur. Og í versta falli er alltaf hægt að hringja á Álfhólsveginn, en við gistum auðvitað í íbúðinni okkar þar :) en þangað til verður notið þess að vera í Árósum í afsleppelsi :)

|

fimmtudagur, júlí 16, 2009

Afmælisbarn gærdagsins

Vegna anna í gær náði ég ekki að blogga um afmælisbarn gærdagsins.....

En hann Atli minn varð 27 ára í gær og héldum við saman upp á það bara tvö....Atli fékk 2 afmæliskökur, eina skúffuköku og súkkulaðiostaköku sem að við erum enn að borða, svo fékk hann alveg heilan helling af góðum gjöfum og svo til að toppa daginn hafið mamma og pabbi látið koma með lambakjöt handa okkur til að njóta í tilefni dagsins og það var svo sannarlega gert.
Atli fékk sólskin þannig að á danska mátan þýðir það að hann hafi verið stilltur og prúður drengur síðast liðið ár. En ekki nóg með það að þá kom þessi rosalega mikla rigning og þrumur og eldingar...það gladdi minn mann afar mikið :)

En þetta var hin besti dagur í alla staði og nutum við hans saman :)

|

þriðjudagur, júní 23, 2009

Próf

já er ekki kominn tími á prófablogg. Er búin að sitja í nokkra daga á sófanum og vera að lesa mér til fyrir próf í líffærafræði, lífeðlisfræði, hjúkrun og iðjuþjálfun. En fer sem sagt í eitt próf úr öllum þessum fögum og á ég að tala í rúmar 3 mín um hvert fag eftir að hafa verið með sýnikennslu á sjúklingi sem að verður leikinn af bekkjarsystur minn :) þannig að það er mikið sem að maður þarf að læra því maður veit ekkert hvað maður kemur til með að draga á fimmtudaginn.

Sólin er að tapa sér hérna í Árósum og ég ætla svo sannarlega ekki að kvarta þó ég sitji inni að læra, því það aldrei gott að kvarta undan sól þegar maður lærir því manni hefnist svo fyrir það þegar maður er búinn og þá rignir á mann. Þannig að ég er ángæð með sólina :)

Prófaljótan er svo sannarlega farin að segja til sín og ég held að íbúðin okkar sé sú sem að sé að líða mest fyrir það, held að hún hafi aldrei verið jafn skítug og illa til tekið í henni síðan að við fluttum. En því verður nú reddað á fimmtudaginn þegar ég er búin í prófum og farin í sumarfrí :)

Atli situr sveittur við að skrifa og fer inn á milli upp í skóla að hitta leiðbeinandan sinn. Hann má bara fá hjálp frá leiðbeinandanum fram til 1.júlí, þannig hann er þvílíkt að nota það núna og reyna að ná svo miklu sem mögulegu til að leiðbeinandinn geti lesið það í gegn. Svo verður júlí notaður til að laga verkefnið til og láta lesa það í gegn og svona. En aðalpunkturinn er að Atli er búinn að vera alveg rosalega duglegur og ég hef enga trú á öðru en að þetta verði mjög flott ritgerð hjá honum sem verður skilað 31. júlí. Við komum svo heim 1.ágúst :)

úff hvað tíminn er fljótur að líða, bara rétt rúmur mánuður í að maður komi heim í sumarfrí :) ég og Atli ætlum sko að njóta þess að vera heima og þurfa ekki að vinna....

jæja bækurnar er að kalla....

|

laugardagur, júní 20, 2009

Sumarrigning

Það byrjaði að rigna rétt í þessu og er það bara gott og blessaða...nema hvað að ég var að viðra sængurnar okkar Atla úti á svölum. Hröð handbrögð og ég náði að bjarga sængunum inn, aðeins rökum. Til að byrja með var þetta bara létt rigning en svo bætti heldur betur í hana og ég kíkti út í á svalir til að njóta frjókornafrís lofts. Lít upp í skýjin og viti menn ég sá bara engin ský, sá bara bláan himinn. Alveg merkilegt að það geti ringt og samt verið svona stór hluti af himninum blár :)

|

miðvikudagur, maí 27, 2009

Á faraldsfæti

Já það er alltaf nóg að gera hjá okkur Atla hvort sem það er að læra (sem er alltaf nóg af), hitta góða vini og ferðast til að hitta fjölskylduna. Núna um helgina ætlum við að skella okkur til Gumma og Grétu, þar sem að við erum ekki búin að hitta þau mjög lengi, sérstaklega Grétu. Við ætlum að leigja okkur bíl saman og ætla Gummi og Gréta að sýna okkur eitthvað skemmtilegt í kringum Lund :) verður ábyggilega mikið fjör!

Svo er ekki beint afslappelsi helgina eftir því að við ætlum að skella okkur til London og sjá Tryggva í leikriti. Ég var nefnilega að spjalla við Tryggva um daginn og við vorum eitthvað að tala um hvort við vildum koma og sjá hann í leikritinu og það vildum við auðvita en ég átti ekki von á því að fá flug á sanngjörnu verði með svona stuttum fyrirvara, en ég fór nú samt inn á Ryanair til að kanna verðið og viti menn þá var flug í boðið báðar leiðir og fyrir okkur bæði á samanlangt 250 danskar krónur! Mín hringdi í Atla og tilkynnti honum að við værum að fara að heimsækja bróður hans :)

Þannig að það er alveg nóg að gera hjá okkur samhliða skólanum!
En þetta er ekki það eina sem er í fréttum. Við Atli vissum að það væri gjöf á leiðinni til okkar frá fólkinu hans Atla í Ástralíu því að vinur tengdasonar þeirrra sem vill svo vel til að er frá Árósum var í heimsókn hjá þeim og átti að taka pakka með hana okkur. Hann hringdi í okkur í fyrradag og spurði hvort við gætum hitt hann til að ná í gjöfina og kannski sest niður með okkur við ánna og fengið okkur eins og einn bjór með honum. Við ákvöðum að skella okkur niður í bæ og hitta hann og svo þegar við löbbum meðfram ánni fer ég að ofanda og benda fram fyrir okkur og Atli greyið sá ekkert gleraugnarlaus.....viti menn situr ekki öll fjölskyldan frá Ástralíu að fá sér hádegismat við ánna! ég varð vægast sagt orðlaus og við hættum ekki að brosa allan daginn eftir þessa góðu endurfundi :)

En það er þannig að Kelly "systir" Atla á kærasta héðan frá Árósum og pabbi hans er að verð 60 ára um helgina þannig að þau eru komin hingað, foreldrarnir og Kelly til að vera í veislunni! held ég sé ekki enn búin að jafna mig eftir sjokkið og á dauða mínum hefði ég frekar átt von á en að hitta Ástralíu búana okkar:)

læt svo eina sumarmynd af Atla að grilla fylgja með svo þetta verði nú ekki myndalaust blogg :)

|

sunnudagur, maí 03, 2009

Jæja er ekki komin eins og tími á eitt blogg frá okkur hérna í Árósum. Það hefur verið nóg að gera hjá okkur síðan í seinasta bloggi og erum við búin að fá heimsókn og fara sjálf í heimsókn heim til Íslands, ég er búin að fara í lokapróf og svo er sumarið komið!

Ásta mamma hans Atla, amma hans hún Guðfinna, Eyjólfur Árni frændi hans og Sigurborg móðursystir hans Atla komu í heimsókn til okkar og var ægilega huggulegt að fá heimsókn að heima eins og alltaf og eyddum við góðri langri helgi með gestunum og sýndum þeim Árósa eins og við gátum.

Svo fór ég í viku starfsnám inn á Skejby sjúkrahús og það inn á hjartalyflækningardeild. Það var mjög spennandi og ég lærði mjög mikið. Ég fer sov aftur inn á þessa deild í nóvember og verð þá í 10 vikur inni á þessari deild. Þannig að eins og þið sjáið þá er skólin búinn að fara ansi geyst af stað hjá mér en er samt sem áður búið að vera mjög gaman þrátt yfrir mikið að lesa. Næstu 10 vikurnar verð ég svo í mikilli verklegri kennslu til að undirbúa okkur undir verklegt próf sem að ég á að fara í í júní.

Í byrjun apríl fórum við svo heim til Íslands til að birtast óvænt í afmæli pabba hans Atla og heppnaðist það vel og kallinn grunaði ekkert og varð rosalega hissa. Ég var á fullu í prófalestri og Atli í heimildaröflun fyrir ritgerðina sína þannig að það fór nú ekki sérlega mikið fyrir okkur heima. Ég endaði svo á því að verða veik á skírdag, með hita og leiðindi og var veik í næstum því 10 daga! Þannig að við hittum nú lítið af fólki á meðan við vorum heima annað en fjölskylduna.

Þegar við komum svo aftur til DK þá var komið svona rosalega gott veður að þetta hefur verið eins og hinir bestu sumardagar og við erum búin að reyna að njóta þeirra eins og við getum þrátt fyrir að hafa rosalega mikið að gera.
Við erum á fullu í skólanum og Atli er duglegur við að skrifa og stelst til að sitja heima og skrifa úti í garði þegar veðrið er gott og er hann bara farin að taka ágætis lit :)

Grill seasonið heldur áfram hjá okkur enda hefur því ekki lokið síðan seinasta sumar. Við erum einu sinni búin að leggja á borð úti í garði og haldið þið ekki að meðan við litum af borðinu að þá fengum við máv í heimsókn á borðið! Hann var þá hrakin í burtu en hann var ekki langt frá allan matartímann og fylgdist vel með okkur.

Túlípanalaukarnir sem Atli kom með frá Hollandi handa mér eru núna í blóma og erum í allskonar litum og lífga mikið upp á hjá okkur á svölunum. Við lifum sem sagt í drauma heimi og dreymir að við eigum garð og reynum að rækta allt sem að við getum :) svo jöplum við á jarðaberjum sem að eru byrjuð að lækka í verði og dreymum um okkar eigin jarðaberja rækt. En annars gaf Atli mér hina sniðugustu bók í sumargjöf en það er bók um öll tré í Skandinavíu og nú er bara tími til komin að ég og Atli förum í göngutúr út í skóg og lærum hvað tréin hérna heita :)

jæja ég læt þetta nægja í bili svo að það verði nú einhver sem að nennir að lesa allan póstin og reyni svo að henda inn fleiri fréttum fljótlega :)

|

þriðjudagur, mars 17, 2009

Alltaf í símanum

Mér finnst fólk tala ansi mikið í síma og ég geri það nú mikið sjálf þó mest af því sé nú í gegnum tölvuna. Mér finnst það líka vera ansi oft að fólki finnist alveg meira en sjálfsagt að svara alltaf í símann í vinnu og skólanum, fer þá jafn vel úr tíma til að tala í símann, ég skil það mjög vel ef að maður á von á afar mikilvægu símtali að maðuar geri það en ekki bara þegar kærastinn er að velta því fyrir sér hvað eigi að vera í kvöldmatinn.

Ég varð sem sagt vitni af því í dag að maður sem að var að gera við hluti í eldhúsinu mínu ákvað að svara ekki símanum sínum þegar hann hringdi og hafði orð á því hvað fólk væri ótilitsamt og hvort það gerði sér ekki grein fyrir að maður væri í vinnu og gæti ekki verið að tala í símann. Þetta kom mér afar á óvart að maðurinn tók ekki símann og í þokkabót var hann hneykslaður á trufluninni.

Finnst að fleiri ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar og ekki vera svona rosalega háðir símunum sínum :)

|

föstudagur, mars 13, 2009

Vor í lofti!

Já það er svo sannarlega vor í lofti hjá okkur í Århus. Þegar Atli kom heim frá Hollandi í október þá færði hann mér þessa fínu túlípanalauka sem að við settum svo í mold og út á svalir. Núna eru 7 af þeim byrjaðir stinga sér upp úr moldinni okkar til mikillar ánægju :) Svo var ég að labba úti áðan og þrátt fyrir að klukkan sé orðin meira en 10 þá var bara ekki orðið kalt úti og farið að vera öðruvísi lykt úti, svona vor lykt :)

Ég og Atli erum mjög kát yfir því að vorið sé að koma og er alveg glimrandi veðurspá um helgina og við ætlum að reyna að njóta þess eins og við getum :)

|

miðvikudagur, mars 04, 2009

Heimsóknir

Já við erum að fá fólk í heimsókn og við hlökkum ekkert smá til! Ásta mamma hans Atla, Guðfinna Amma hans og Eyjólfur Árni frændi hans eru að koma á morgun og svo kemur Sigurborg móðursystir hans á föstudaginn! Þetta verður án efa mikið fjör og mikið gaman að fá þessa hersingu til okkar en við erum ekki búin að sjá þau öll sömul síðan í ágúst í fyrra.
Þannig að það er búið að vera nóg að gera hjá okkur að undirbúa komu þeirra og teljum niður þangað til um klukkan 5 á morgun :)

Annars er bara rugl mikið að gera í skólanum, en þetta er spennandi þannig það gerir nú ekki mikið til. Eftir 2 vikur fer ég svo í viku starfsnám inn á spítala og ég er búin að fá að vita að ég fer inn á hjartalyflækningardeild sem er líka gjörgæsludeild fyrir hjarta- og heilablóðfallssjúklinga! Þannig að ég efast ekki um að það verði alveg rosalega lærdómsríkt að komast út og hitta sjúklinga og starfsfólk á spítalanum, en ég verð sem sagt á Skejby sygehus sem er hluti af Århus universitets hospital. Þetta er svo jafnframt sú deild sem að ég verð í 10 vikur á frá og með nóvember, þannig að um að gera að nota tíman þessa viku til að kynnast umhverfinu og starfsfólki :)

Atli er enn bara á fullu að skrifa og gengur bara alveg príðilega með það allt sama. Hann situr bæði heima að skrifa og svo á hann skrifborð uppi í skóla og þangað fer hann þegar hann er alveg að verða brjálaður á því að vera einn heima :)

Svo er ég svo heppin að ég eignaðist lítinn frænda í dag og ég vil bara óska Sylvíu frænku og Binna innilega til hamingju með drenginn. Það eru sem sagt alltaf að bætast við kríli sem að maður verður að knús næst þegar maður kemur heim!

Nú heyri ég anatomy bókina mína kalla á mig ég ætla ekki að láta hana bíða lengur þannig að ég læt þetta nægja núna í bili og lofa að vera duglegri að blogga núna, er búin að vera allt of löt við þetta :)

|

mánudagur, febrúar 16, 2009

Glandulae suprarenalis

Þegar ég sat og skrifaði ritgerði í líffræði í MH hjá henni Sigríði hugsaði ég að ég þyrfti nú aldrei að nota vitnesku mína um nýrnahetturnar og hvað þær gera, en maður hlýddi og skrifaði ritgerðina. Og viti menn, í dag kom það bara í ljós að það kom mér heldur betur til góða að vita eitthvað um hormónaframleiðsu og virkni nýrnahettanna. Þannig að ég sit hérna kát við skrifborðið mitt að glósa um hina og þessa hormóna og hvar þeir eru framleiddir og virkni t.d. nýrnahettanna :)

|

sunnudagur, febrúar 08, 2009

Afmælisbörn vikunnar!

Já það var fleiri en eitt afmælisbarn í þessari viku og þar sem það var svo mikið að gera hjá mér fyrstu vikuna í skólanum náði ég bara ekki að blogga um það. Mútta átti afmæli 3. og pabbi 5. og ég vil bara enn og aftur óska þeim innilega til hamingju með afmælið og urðu þau árinu yngri en í fyrra :)
Hérna eru afmælisbörnin í heimsókn hjá okkur í Árósum

|

mánudagur, febrúar 02, 2009

Hjúkrunarfræði, skipulagning og söngur

Já núna er ég formlega orðin hjúkrunarfræðinemi og líst bara svona svakalega vel á allt enn sem komið er :) það var sem sagt fyrsti formlegi skóladagurinn í dag þó hann færi nú að mestu bara í kynningu á hinu og þessu. Við fengum að hitta kennarana okkar og svona og velja okkur sæti í stofunni okkar og ég náði akkúrat sæti þar sem að ég vil sitja í stofunni og er alsæl með það og sérstaklega þar sem að sessunautar mínir eru alveg rosalega almennilegar, ekki það reyndar að allar stelpurnar sem að ég er búin að tala við í bekknum eru mjög almennilegar :)

Seinasta föstudag var svona hrista saman bekkinn dagur þannig að þar fékk maður tækifæri til að spjalla alveg heilmikið og þess vegna var dagurinn í dag frekar afslappaður því maður þekkti andlitin og einhver nöfn og svona.

Eftir að hafa verið að lesa þýsku við háskólann í Århus og fylgjast með Atla gera slíkt hið sama, að þá komst ég að þeirri niðurstöðu að hlutirnir eru alveg svakalega óskipulagðir og maður fær alltaf að vita hlutina seint og síðar meir, þ.e. ef að maður fær að vita þá yfir höfuð.
En núna verð ég að taka það til baka að segja að skólar hér séu almennt óskipulagðir eftir að ég byrjaði í hjúkrunarfræðinni!! ég hef bara aldrei upplifað aðra eins skipulagningu. Ég veit núna hvenær ég á að skila verkefnum út önnina og hvað ég á að lesa út önnina, hvenær vorprófin mín eru og allt! Og ekki nóg með það að þá eru allir kennararnir með á hreinu hvenær við eigum að gera hvað í tímum hjá öðrum kennurum! ég bara átti ekki orð yfir þessu, held að pabbi væri mjög hrifin af svona :)

En það var eitt móment sem að ég var við það að hlægja í skólanum í dag en þegar ég leit í kringum mig og sá að allir voru að taka þetta svona rosalega alvarlega varð ég nú að passa mig að hlægja ekki og halda andliti. En það var þannig að 2 kennarar sem að kenna okkur sygepleje komu inn og dreyfðu litlum bókum, sem kom svo í ljós að voru söngbækur og við hófum sem sagt kennslustundina á samsöng um hvernig veturinn væri hér enn og við þyrftum að vera þolinmóð og gefa vorinu tíma til að koma! var mjög rólegt lag og ég var auðvita sú eina sem ekki kunni lagið. En þetta var mjög fyndið móment fyrir mig ég var ekki alveg viss hvort við værum að taka hlutina alvarlega eða ekki, svo eftir samsönginn fórum við að tala um hvernig við þyrftum líka að gefa okkur tíma og vera þolinmóð gagnvart sjálfum okkur. Auðvitað var mikið til í því en ég vissi það ekki þegar við byrjuðum á laginu. En er ansi hrædd um að þetta hafi verið móment sem maður hefur þurft að vera á staðnum til að finnast þetta jafn fyndið og mér fannst þetta.

Annars er allt í góðu hjá okkur og Atli bara að vinna grunnvinnuna fyrir ritgerðina sína og er búinn að fá leiðbeinanda sem hann er að fara að hitta í vikunni og skrifar undir formlegan samning að hann megi byrja á ritgerðinni sinni og fær þá líka skila dag á ritgerðina. Þannig að þetta verður hin mesta lærdómsönn hjá okkur hérna á Kirkegaardsvej.

En heimalærdómur kallar, eins gott að vera á tánum frá fyrsta degi :)

|

fimmtudagur, janúar 15, 2009

2009

Já nú er nýja árið gengið í garð. Við Atli áttum alveg frábær jól með mömmu og pabba og frábær áramót með Ísaki og vinum! við getum svo sannarlega ekki kvartað þó við höfum ekki farið heim til Íslands til að fagna styðstu dögum ársins.

2008 var frábært ár hjá okkur, við byrjuðum á því að trúlofa okkur í febrúar, fara til Berlínar í mars, fá Gumma og Grétu í heimsókn í apríl, Rafn, Gerður og Svandís komum svo í maí og við fórum í próf í alveg rosalega góðu veðri og auðvitað þegar við vorum búin í prófum þá fór sólin. En sólin kom aftur þegar við fórum yfir til Lundar og þaðan á Hróaskeldu. Svo í byrjun júlí fórum við heim til Íslands þar sem að Atli fór að vinna fyrir Hafnarfjarðarbæ eins og venjulega og ég breytti til og vann sem kirkjuvörður í digraneskirkju.
Ég fékk svo svar um hjúkrunarfræðina í ágúst um að ég myndi byrja í henni í febrúar. Atli byjaði svo sína seinustu önn með kennslu í háskólanum því þessa önnina verður hann bara að skrifa mastersritgerðina sína. Ég fékk vinnu hjá fyrirtæki sem heitir Doktorservice og er búin að vera að vinna þar alla seinustu önn. Í september kom svo öll fjölskyldan til að vera við brúðkaupið hennar Önju og Daniels og við héldum smá veislu og var gaman að hafa alla fjölskylduna saman svona þegar allir búa í útlöndum og erfitt að vera öll á sama stað. Svo komum mamma og pabbi í desember og héldu alveg rosalega hugguleg jól saman, var samt mjög skrítið að halda jól hérna úti en samt gaman að hafa prófað það :)
Áramótin voru ekki af verri endanum þar sem við fengum að hafa Ísak hjá okkur. Tina og Rune héldu líka með okkur áramót og elduðum við saman rosa flottan mat og skutum svo upp flugeldum saman og skáluðum á miðnætti, var rosa fjör.

2009 fór af stað með því að Atli fór í próf og skilaði 2 ritgerðum 12.jan og núna er hann í fríi þangað til að hann fær leiðbeinanda fyrir mastersritgerðina. Ég er byrjuð á undirbúningsnámskeiði fyrir hjúkrunarfræðina sem fer svo á fullt 2.febrúar.

Við vonum að 2009 verið jafn gott og 2008. Við verðum bara á fullu í skólanum fram á sumar og svo komum heim í ágúst og náum vonandi að vera heima í 3 vikur. Svo er aldrei að vita hvað skemmtilegt maður á eftir að gera á þessu ári því eins og í fyrra að þá var lítið plan fyrir árið en við enduðum á því að gera ekkkert smá mikið þegar árið var komið á enda :) og já má auðivtað ekki gleyma því að Ásta mamma hans Atla og Guðfinna amma hans Atla eru að koma að heimasækja okkur í mars þannig að það er svo sannarlega eitthvað til að hlakka til.

Svo er tilboð hjá express í dag á flugi til okkar frá 16.jan til 28.feb þannig ef að einvhejrum langar að koma í heimsókn eruð þið alltaf velkomin!

|
eXTReMe Tracker